Sean Cox var í stúkunni á Anfield í kvöld og sá þar sína menn í Liverpool vinna 3-1 sigur á Manchester City í toppslag í ensku úrvalsdeildinni.
Liverpool er eftir sigurinn með átta stiga forystu á toppi deildarinnar, en liðið stefnir á það að vinna sinn fyrsta meistaratitil frá 1990.
Liverpool er eftir sigurinn með átta stiga forystu á toppi deildarinnar, en liðið stefnir á það að vinna sinn fyrsta meistaratitil frá 1990.
Cox var sérstakur gestur á leiknum, en fyrir einu og hálfu ári síðan slasaðist hann alvarlega þegar Simone Mastrelli, stuðningsmaður Roma, réðst á hann fyrir utan Anfield heimavöll Liverpool. Cox var að fara á leik Liverpool gegn Roma í Meistaradeildinni.
Cox var í lífshættu um tíma en hann varð fyrir alvarlegum heilaskaða í árásinni. Hann hefur verið í endurhæfingu og mætti í kvöld í fyrsta sinn á Anfield frá árásinni.
Jurgen Klopp talaði um það í aðdraganda leiksins að hann vildi hitta Cox, og það gerði hann.
„Ég hitti Sean Cox fyrir leikinn. Það var mjög gaman að hitta hann. Hann var mjög ánægður að sjá mig, en ég var miklu ánægðari að hitta hann. Eiginkona hans og sonur voru líka þarna, þetta var stórkostlegur dagur," sagði Klopp.
„Ef hann flytur til Liverpool þá mun hann 100% fá ársmiða."
Hér að neðan má sjá mynd af vinunum, Klopp og Cox.
This picture is absolutely class. Jürgen Klopp alongside Sean Cox after Liverpool's victory over Man City. Cox attended his first Liverpool game at Anfield today since being attacked by Roma hooligans that left him in a coma. ❤ #LIVMCI pic.twitter.com/8gCvmQlJqM
— BenchWarmers (@BeWarmers) November 10, 2019
Athugasemdir