Edinson Cavani, sóknarmaður Paris Saint-Germain, er eftirsóttur af félögum í MLS-deildinni.
Ítalski fjölmiðlamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að Los Angeles Galaxy vilji fá Cavani í stað Zlatan Ibrahimovic, sem hefur leikið sinn síðasta leik fyrir LA Galaxy.
Samningur Cavani við PSG rennur út næsta sumar, en LA Galaxy hefur áhuga á því að næla í hann í janúarglugganum.
LA Galaxy er þó ekki eina félagið úr MLS-deildinni sem hefur áhuga á hinum 32 ára gamla Cavani. Samkvæmt Di Marzio þá er Inter Miami, félag í eigu David Beckham, með samkomulag við Cavani, án þess þó að hann sé búinn að skrifa undir.
Cavani hefur leikið með PSG frá 2013, en þar áður lék hann fyrir Napoli á Ítalíu.
Athugasemdir