Kane skrifar undir nýjan samning við Bayern - City blandar sér í baráttuna um Tonali - AC Milan undirbýr tilboð í Mount
Innkastið - Hemmi rekinn, Akureyri í frjálsu falli og Blikar nálgast bikar
Harkið - Skandall í Sandgerði
Útvarpsþátturinn - Sá glaðasti og úrvalslið 1-11
Uppbótartíminn - Þrjú lið á leið í titilbaráttu?
HM hringborðið - Stjörnurnar standa undir nafni
Harkið - Göngutúr í Garðinum
Innkastið - Dalur martraðanna
Útvarpsþátturinn - Keli í Dal draumanna og Freysi í Þrándheimi
HM hringborðið - Tíu menn og stytta
UTAN VALLAR: Yfirferð á ársreikningum - Fylkir í miklu brasi
Harkið - Bann í Búdapest
Innkastið - Eru ósigraðir Víkingar óstöðvandi?
HM hringborðið - Snyrtilegir Japanir og bitlausir Spánverjar
Uppbótartíminn - Nú stöndum við upp og klöppum
Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskipti í Garðabæ og Einar Örn um HM
Harkið - Hjólari á Króknum
HM hringborðið - Línurnar lagðar fyrir komandi átök
Uppbótartíminn - Rúst í Laugardal, lið fá einkunnir og Sara komin heim
Harkið - Jón Daði mættur aftur!
Besta spjallið - Máni Péturs fer yfir stöðuna í Garðabæ
banner
   fim 08. júlí 2010 09:00
Magnús Már Einarsson
Símahrekkir Keflvíkinga: Haffi Haff og Vladimir
Magnús Þórir (til hægri) féll fyrir símahrekk.
Magnús Þórir (til hægri) féll fyrir símahrekk.
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Andri Steinn Birgisson, leikmaður Keflvíkinga, sló á létta strengi á dögunum þegar hann tók upp nokkra símahrekki á liðsfélaga sína.

Andri fékk Rikka G, útvarpsmann á FM957, með sér í lið og þeir hringdu í fjóra leikmenn Keflvíkinga.

,,Mér datt þetta í hug fyrir bikarleikinn á móti FH. Ég fékk allt í einu þessa flugu í hausinn að það væri skemmtilegt að spila eitthvað svona fyrir leik. Þetta svínvirkaði og sló í gegn inn í klefa," sagði Andri Steinn við Fótbolta.net.

Andri og Rikki hringdu í Magnús Þóri Matthíasson og Hólmar Örn Rúnarsson og léku söngvarann Haffa Haff.

Magnús Þórir tók vel í tilboð frá Haffa Haff um að leika í tónlistarmyndbandi.

,,Ég held að allir strákar á hans aldri myndu segja já við þessu. Þetta leit vel út og hann var að fá slatta af pening í vasann fyrir þetta," sagði Andri Steinn.

Þá hringdu Andri og Rikki einnig í Einar Orra Einarsson og Paul McShane og léku erlendan mann að nafni Vladimir en hér að ofan má hlusta á alla hrekkina. Magnús Þórir er fyrstur, Paul McShane annar, Einar Orri þriðji og Hólmar Örn fjórði.
Slapp
banner