Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   sun 09. júní 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alexander-Arnold mun fá tækifæri
Mynd: Getty Images
Trent Alexander-Arnold mun fá tækifæri með enska landsliðinu þegar liðið mætir Sviss í leiknum um þriðja sætið í Þjóðadeildinni í dag.

Það er Daily Mail sem segir frá þessu.

Alexander-Arnold er tvítugur og hefur slegið í gegn með Liverpool. Hann spilaði stórt hlutverk fyrir Liverpool sem vann Meistaradeildina á nýliðnu tímabili.

Kyle Walker átti erfiðan leik gegn Hollandi í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar í vikunni þegar England tapaði 3-1.

Alexander-Arnold mun koma inn fyrir hann í dag og samkvæmt grein Daily Mail mun hann fá gullið tækifæri til að stela byrjunarliðssætinu af Walker. Gareth Southgate, landsliðsþjálfari, telur að Alexander-Arnold sé tilbúinn fyrir stærra hlutverk.

Alexander-Arnold á að baki fimm A-landsleiki fyrir England og eitt landsliðsmark.
Athugasemdir
banner
banner
banner