Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. mars 2024 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd fylgist með tveimur leikmönnum Everton
Amadou Onana.
Amadou Onana.
Mynd: Getty Images
Manchester United vann 2-0 sigur gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi.

Eftir leikinn er fjallað um það á Bretlandseyjum að United sé að fylgjast með tveimur leikmönnum úr liði Everton.

Samuel Luckhurst, fréttamaður Manchester Evening News skrifar um það að United hafi áhuga á Jarrad Branthwaite og Amadou Onana.

Branthwaite er 21 árs gamall miðvörður og Onana er 22 ára gamall miðjumaður sem byrjuðu báðir í tapi Everton á Old Trafford.

Þeir eru tveir mikilvægustu leikmenn Everton og það verður líklega erfitt fyrir United að sækja þá, en það er spurning hvort félagið muni reyna.
Athugasemdir
banner
banner