Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. mars 2024 09:37
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Þjálfari Lecce skallaði andstæðing og var rekinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lecce tók á móti Verona í fallbaráttuslag í efstu deild ítalska boltans í gær og höfðu gestirnir frá Veróna betur með einu marki gegn engu.

Eftir lokaflautið var merkilegt atvik sem átti sér stað þegar Roberto D'Aversa, þjálfari Lecce, ákvað að skalla Thomas Henry, framherja Verona.

Ekki er ljóst hvað gerðist í aðdragandanum en í myndbandi af atvikinu sést hvernig D'Aversa labbar beina leið að Henry til að skalla hann og labbar svo til baka.

„Ég fór inn á völlinn til að reyna að stöðva slagsmál frá því að brjótast út á milli leikmanna. Leikmenn Verona voru að ögra okkur mikið eftir lokaflautið," sagði D'Aversa við Sky Italia að leikslokum.

„Þetta var ekki fallega gert hjá mér, ég veit það. Þetta er óafsakanlegt af minni hálfu en ég er búinn að tala við teymið hjá Verona og útskýra mína hlið. Ég fór ekki inn á völlinn til að ráðast á leikmanninn."

Lecce fordæmdi hegðun D'Aversa og nú hefur félagið tilkynnt að hann hafi verið leystur frá störfum.

Fréttin var uppfærð

Lecce coach D'Aversa headbutting Verona striker Henry after the end of the game
byu/interfan1999 insoccer

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 33 17 7 9 59 39 +20 58
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Frosinone 34 7 10 17 43 63 -20 31
17 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
18 Udinese 33 4 16 13 31 50 -19 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 34 2 9 23 26 73 -47 15
Athugasemdir
banner
banner
banner