Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   mið 13. mars 2024 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Xavi: Svar mitt mun ekki breytast
Mynd: Getty Images
Xavi, þjálfari Barcelona, er harðákveðinn í að hætta með liðið eftir tímabilið og er ekkert sem getur breytt ákvörðun hams.

Spánverjinn kom Börsungum í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í gær eftir frábæran 3-1 sigur á Napoli.

Fjölmiðlamenn spurðu Xavi eftir leikinn hvort það væri möguleiki á að hann yrði áfram ef Barcelona myndi vinna Meistaradeildina, en Xavi var ákveðinn í svari sínu.

„Þið haldið áfram að spyrja mig hvort ég verði áfram ef við vinnum Meistaradeildina, en svarið er nei. Framtíð mín mun ekki breytast og á sama á við um svarið.“

„Ég fer eftir tímabilið en mun halda áfram að njóta Meistaradeildarinnar sem stuðningsmaður Barcelona,“
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner