Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 17. mars 2024 15:40
Aksentije Milisic
Man Utd mun ekki kaupa Amrabat - Orðaður við Juve
Mynd: EPA

Sofyan Amrabat hefur ekki slegið í gegn hjá Manchester United í vetur en hann er á láni frá Fiorentina á Ítalíu.


Amrabat vakti mikla athygli með frammistöðu sinni á HM í Katar með Marokkó en þar fór liðið alla leið í undanúrslitin.

Í kjölfarið voru nokkur stórlið á eftir Amrabat en hann endaði á því að fara til Manchester United á láni síðasta sumar. United getur keypt leikmanninn að lánssamningi loknum en nú er greint frá því að félagið mun ekki gera það.

Amrabat hefur verið í aukahlutverki hjá United og hefur hann ekki fundið sig í enska boltanum til þessa.

Gazzetta dello Sport segir frá því að Juventus hafi áhuga á að fá leikmanninn til liðsins í sumar frá Fiorentina.


Athugasemdir
banner
banner