Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. mars 2024 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sólin í Los Angeles kallar á Giroud
Olivier Giroud.
Olivier Giroud.
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Olivier Giroud er núna í viðræðum við Los Angeles FC í Bandaríkjunum.

Giroud er orðinn 37 ára gamall en samningur hans við ítalska stórliðið AC Milan rennur út í sumar.

Giroud hefur staðið sig vel á tímabilinu en hann hefur skorað 14 mörk og lagt upp níu fyrir Milan á yfirstandandi leiktíð.

þessi reynslumikli leikmaður hefur spilað 128 leiki fyrir landslið Frakklands og skorað í þeim 56 mörk. Þá hefur hann spilað með liðum á borð við Arsenal og Chelsea en hann hefur verið í röðum AC Milan síðan árið 2021 og staðið sig mjög vel.

The Athletic segir frá því að LAFC sé í viðræðum við Giroud en ekkert samkomulag er enn í höfn. Giroud er með marga möguleika og er ekki útilokað að hann verði áfram á Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner