Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 20. september 2018 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mexíkóarnir mega ekki spila með Þór/KA
Sandra Mayor.
Sandra Mayor.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Bianca Sierra.
Bianca Sierra.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Ariana Calderon.
Ariana Calderon.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór/KA sendi í gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að mexíkósku landsliðskonurnar þrjár í herbúðum liðsins, Ariana Calderon, Bianca Sierra og Stephany Mayor, fá ekki að ljúka tímabilinu með liðinu.

„Þær munu missa af lokaleik liðsins í Pepsi-deildinni gegn Stjörnunni á laugardag og útileiknum gegn VfL Wolfsburg í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar miðvikudaginn 26. september. Um þetta fá þjálfari og stjórn Þórs/KA engu ráðið þrátt fyrir mikinn samningsvilja og tilslakanir af hálfu liðsins," segir í yfirlýsingunni.

Þór/KA mun enda í öðru sæti Pepsi-deildarinnar á eftir Breiðabliki. Liðið mætir ógnarsterku liði Wolfsburg í 32-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í seinni leik liðanna næstkomandi miðvikudag. Fyrri leikur liðanna endaði 1-0 á Akureyri.

Mexíkósku landsliðskonurnar eru að fara í landsliðverkefni. Landsliðsþjálfari Mexíkó hefur krafist þess að fá leikmennina til æfinga tveimur vikum fyrir undankeppni Mið- og Norður-Ameríkuríkja (CONCACAF) fyrir HM sem fram fer í Frakklandi á næsta ári. Fyrsti leikur liðsins í undankeppninni fer fram 4. október og munu þær halda utan í dag.

Yfirlýsing Þórs/KA í heild sinni
Allt reynt
Stjórn og þjálfari Þórs/KA hafa, hafa í samstarfi við KSÍ, reynt allt til að ná samningum við mexíkóska landsliðið og þjálfarann og hafa teygt sig til hins ýtrasta til að fresta brottför þeirra og/eða fá þær til baka til þátttöku í leiknum í Þýskalandi, en án árangurs. Kröfu mexíkóska sambandsins verður ekki haggað. Jafnframt hefur verið leitað leiða til að sýna fram á rétt Þórs/KA til að neita þessari kröfu, en svo virðist sem það sé ekki hægt undir neinum kringumstæðum. Athygli vekur í þessu sambandi að ef Þór/KA tækist að slá Wolfsburg út væru leikmennirnir enn með landsliði sínu þegar liðið ætti að spila fyrri leikinn í 16 liða úrslitum.

Stjórn Þórs/KA lýsir yfir miklum vonbrigðum með málalyktir og furðar sig á að mótafyrirkomulag aðildarsambanda FIFA skuli ekki betur skipulagt en svo að verkefni á borð við Meistaradeild Evrópu og álfukeppnir landsliða fyrir HM skuli rekast á með þessum hætti og bitna á árangri félagsliða. Þessi staða skerðir í senn atvinnuréttindi umræddra leikmanna og takmarkar möguleika félagsliða til að ráða til sín leikmenn frá fjarlægum löndum.

Vonbrigði fyrir leikmennina sjálfa og liðið í heild
Þessi niðurstaða er auðvitað gríðarleg vonbrigði fyrir þær sjálfar, sem og liðið allt og stuðningsfólk. Stjórn Þórs/KA vill árétta að leikmennirnir þrír eiga alla okkar samúð vegna þeirrar erfiðu stöðu sem þær eru í og styður þær heilshugar til góðra verka. Þær hafa átt stóran þátt í frábærum árangri liðsins undanfarin misseri, eins og áhugafólk um knattspyrnu þekkir. Rétt er einnig að taka fram að þær eru sjálfar mjög leiðar yfir þessari stöðu og hefðu, ef þær hefðu fengið nokkru um það ráðið, viljað taka þátt í báðum verkefnum, klára tímabilið með Þór/KA og spila með mexíkóska landsliðinu í CONCACAF-keppninni.

Stjórn Þórs/KA lýsir yfir fullum skilningi á vilja leikmannanna til að spila með landsliði sínu og leggja sitt af mörkum til að liðið komist á HM í Frakklandi 2019, en harmar um leið óbilgirni mexíkóska sambandsins. Leikmennirnir eru að ljúka tímabilinu á Íslandi og eru í fullu leikformi, hafa að auki nýlega spilað tvo æfingaleiki með landsliðinu, og hefðu því hæglega getað fengið tilslökun frá sambandinu til að ljúka tímabilinu með sínu félagsliði án þess að það bitnaði á framlagi þeirra til landsliðsins.

Þær Ariana Calderon, Bianca Sierra og Stephany Mayor hafa glatt okkur með frábærum tilþrifum, fagmennsku og vináttu á liðnum misserum og fá bestu þakkir frá Þór/KA fyrir framlag þeirra til velgengni liðsins. Frábærir leikmenn sem hafa lagt gríðarlega mikið af mörkum til liðsins og samherjanna.

Frábærir leikmenn fylla skörðin
Þrátt fyrir þetta áfall leggjum við ekki árar í bát, enda hefur liðið á að skipa sterkum leikmönnum sem fylla munu skörð þeirra sem teknar eru frá okkur. Stjórnin og þjálfararnir bera fullt traust til þeirra leikmanna sem eftir eru og liðið heldur ótrautt út í þau verkefni sem ólokið er á þessu tímabili, berum höfuðið hátt og höfum trú á að við getum gert vel, eins og alltaf.

Fyrir hönd Þórs/KA
Nói Björnsson, formaður stjórnar
Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari





Athugasemdir
banner
banner
banner
banner