Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 22. mars 2024 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Nökkvi Már framlengir við ÍBV
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nökkvi Már Nökkvason hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV út árið 2026.


Þessi 23 ára gamli leikmaður er uppalinn í Stjörnunni en gekk til liðs við ÍBV árið 2017. Hann hefur leikið 67 leiki fyrir félagið en hann kom við sögu í 11 leikjum þegar liðið féll úr Bestu deildinni síðasta sumar.

Samhliða því að spila með ÍBV hefur hann stundað nám í Bandaríkjunum.

Hann spilar aðallega sem varnarmaður en getur einnig leyst stöður á miðjunni. Hann kom við sögu í öllum leikjum liðsins í Lengjubikarnum í vetur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner