Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
   mán 22. júlí 2019 12:00
Magnús Már Einarsson
McTominay ekki hræddur við aukna samkeppni
Mynd: Getty Images
Scott McTominay, miðjumaður Manchester United, segist ekki óttast það ef liðið bætir við miðjumönnum í sumar.

Miðjumennirnir Bruno Fernandes hjá Sporting Lisabon og Sean Longstaff hjá Newcastle hafa báðir verið orðaðir við United undanfarnar vikur.

McTominay spilaði 22 leiki á síðasta tímabili og er staðráðinn að á að sigrast á samkeppninni og fá fleiri leiki á komandi tímabili.

„Sama hvaða nýju leikmenn koma eða hver spilar hvar þá þarftu að hafa trú á sjálfum þér sem leikmaður Manchester United," sagði McTominay.

„Það er það sem ég hef gert undanfarin tvö ár. Ég hef alltaf haft trú á sjálfum mér."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner