banner
   mán 05. desember 2016 15:17
Magnús Már Einarsson
Björn Einars íhugar að bjóða sig fram sem formaður KSÍ
Björn Einarsson.
Björn Einarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn Einarsson, formaður Víkings, íhugar að bjóða sig fram til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins sem fer fram í Vestmannaeyjum þann 11. febrúar. Vísir.is greinir frá þessu í dag.

Töluvert hefur verið hringt í Björn að undanförnu og hann hvattur til að fara gegn Geir Þorsteinssyni sem hefur setið sem formaður síðan 2007.

„Þetta eru þreifingar, ekki mjög djúpar pælingar og ég hef ekki tekið neina ákvörðun. En ímynd þessa glæsilega sambands þarf að vera önnur en hún er núna,“ segir Björn við Vísi.

Björn segir að síminn hafi mikið hringt og ákall um breytingar sé augljóst.

„Ég hef aldrei fundið jafn mikið fyrir því og nú. Ég hef verið lengi í því að reka íþróttafélag og það er dýrmæt reynsla og ég er líka með mikla rekstrarreynslu í fyrirtækjum, bæði hér heima og erlendis."

Guðni Bergsson, fyrrum landsliðsmaður, íhugar einnig að bjóða sig fram sem formaður eins og komið hefur fram.

Björn var á sínum tíma formaður knattspyrnudeildar Víkings en hann hefur undanfarið verið formaður félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner