Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   lau 11. ágúst 2018 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Richarlison: Ég mun muna þennan dag það sem eftir er af lífi mínu
Mynd: Getty Images
Richarlison var í byrjunarliði Everton í dag þegar þeir heimsóttu Wolves en þetta var fyrsti deildarleikur Richarlison með Everton en hann kom til þeirra frá Watford í sumar.

Fyrsti deildarleikur Richarlison með Everton endaði með 2-2 jafntefli þar sem hann skoraði bæði mörk Everton.

„Ég mun muna þennan dag það sem eftir er af lífi mínu, ég er mjög ánægður. Ég get ekki annað en þakkað liðsfélögum mínum, við þurftum að hlaupa tvöfalt meira eftir að hafa misst mann af velli."

Ekki nóg með það að Richarlison skoraði tvö mörk þá var hann einnig valinn maður leiksins.

„Ég er mjög ánægður með að vera valinn maður leiksins í fyrsta skipti á ferlinum."
Athugasemdir
banner
banner
banner