Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. ágúst 2019 20:47
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir City og Spurs: De Bruyne maður leiksins
Mynd: Getty Images
Manchester City gerði 2-2 jafntefli við Tottenham fyrr í kvöld og er Sky Sports búið að gefa leikmönnum einkunnir.

Kevin De Bruyne lagði bæði mörk Man City upp og skapaði mikið af færum í leiknum. Hann fær hæstu einkunn og er maður leiksins.

Ederson var versti leikmaður City í dag enda fóru báðir boltarnir sem komu á hann í netið. Hann gat líklega gert betur í fyrra markinu þar sem hann var illa staðsettur þegar Erik Lamela skoraði.

Christian Eriksen, Harry Kane og Danny Rose þóttu verstir í liði Tottenham og fá 5 í einkunn.

Man City: Ederson (5), Walker (7), Laporte (6), Otamendi (7), Zinchenko (6), Rodri (7), Gundogan (6), De Bruyne (8), Sterling (7), Bernardo (6), Aguero (7).
Varamenn: Jesus (6).

Tottenham: Lloris (7), W-Peters (6), Alderweireld (6), Sanchez (6), Rose (5), Winks (6), Sissoko (6), Ndombele (7), Lamela (7), Eriksen (5), Kane (5).
Varamenn: Lucas (6).
Athugasemdir
banner
banner
banner