mið 09. október 2019 21:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Barton segist ekki hafa hrint Stendel
Mynd: Getty Images
Joey Barton, stjóri Fleetwood Town, segist ekki hafa hrint í Daniel Stendel, þáverandi stjóra Barnsley, eftir leik liðanna í apríl. Það sagði hann einnig í apríl svo það teljast varla fréttir nema í dag var það í réttarsal í Barnsley.

Barton var ákærður fyrir líkamsárás en hann er sagður hafa hrint Stendel með þeim afleiðingum að tönn í Stendel skemmdist.

Barton mætti fyrir rétt í dag og sagðist saklaus af ásökunum. Hann mun aftur mæta fyrir rétt í Sheffield þann 6. nóvember. Barton hefur neitað sök frá því að málið kom upp.

Barnsley sigraði umræddan leik, 4-2. Stendel stýrði liði Barnsley upp í Championship deildina í vor en var á mánudaginn látinn taka poka sinn eftir aðeins einn deildarsigur í upphafi leiktíðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner