Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mið 09. október 2019 22:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Wenger: Margir hæfileikaríkir ungir leikmenn hjá Arsenal
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger þekkir vel til hjá Arsenal og hann þekkir einnig vel til þegar kemur að því að vinna með unga leikmenn.

Wenger gerði mann úr mörgum leikmönnum í tíð sinni sem stjóri Arsenal og í vikunni tjáði hann sig um efniviðinn sem félagið er með og talaði þá sérstaklega um Mattteo Guendouzi sem þykir hafa farið mjög vel af stað á leiktíðinni.

„Hann lítur út fyrir að hafa helling af hæfileikum," sagði Wenger.

„Að mínu mati eru margir aðrir efnilegir sem spiluðu einnig undir minni stórn, menn eins og Reiss Nelson og Joe Willock."

„Guendouzi er aðeins einn af mörgum hjá félaginu. Unglingastarfið hefur alltaf skipt miklu máli hjá félaginu og það er frábært sem stjóri að geta gefið efnilegum leikmanni mínútur í leikjum og ef þeir standa sig þá er það ennþá betra."
Athugasemdir
banner
banner