Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
   fös 06. júlí 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Kristjana spáir í leik Frakklands og Úrúgvæ
Kristjana Arnarsdóttir (til vinstri).
Kristjana Arnarsdóttir (til vinstri).
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
8-liða úrslitin á HM hefjast í dag klukkan 14:00 þegar Frakkland og Úrúgvæ mætast í beinni útsendingu á RÚV.

8-liða úrslitin halda síðan áfram í kvöld og á morgun.

Kristjana Arnarsdóttir, þáttastjórnandi í HM stofunni á RÚV spáir í spilin fyrir leik Frakklands og Úrúgvæ.

Frakkland 2 - 1 Úrúgvæ
Ég hef enga trú á öðru en að Frakkarnir klári þetta. Edison Cavani er tæpur hjá Úrúgvæ og Mbappe var svakalegur í síðasta leik hjá Frökkunum.

Held að Griezmann muni eiga góðan leik og þeir Mbappe skori sitt hvort markið. Leikurinn endar 2-1 í venjulegum leiktíma. Suarez skorar fyrir Úrúgvæana en það verður eitthvað voðalegt VAR-bíó í þessum leik.
Athugasemdir
banner