Þórir Hannesson leikmaður Fjölnis fékk í gær rautt spjald eftir aðeins 23 sekúndur í leik gegn KS í 1.deildinni en Fjölnir vann leikinn þrátt fyrir það 4-1. Þórir braut á sóknarmanni sem var að sleppa í gegn og Kristinn Jakobsson rak hann af velli. Fróðir menn hafa tjáð Fótbolti.net að þetta sé líklega met í íslenskum fótbolta, enginn hafa verið rekinn svo snemma af velli áður.
Við höfðum samband við Þóri og spurðum hann hvort þetta hefðu ekki verið nákvæmlega 23 sekúndur. Hann sagði: ,,Já það var allavega mjög snemma, ég skoðaði reyndar ekki vallarklukkuna þegar ég fór út af vellinum en strákarnir sögðu að þetta hefði verið heilar 23 sekúndur."
Þórir segist ekki vita um neinn annan sem hefur fengið rauða spjaldið svo snemma í leik en aðspurður hvort þetta hafi verið verðskuldað spjald sagði hann: ,,Ég er ekki alveg viss með þetta rauða spjald, allavega fannst mér hann detta nokkuð auðveldlega. Þetta var bara algjör óheppni þar sem Gunnar Már (leikmaður Fjölnis) sendi glæsilega stungusendingu beint á framherja KS og ég ætlaði að redda því en það fór ekki betur en svo."
Við spurðum Þóri hvort þetta væri ekki broslegt eftir á og hann sagði: ,,Ég brosti nú ekkert voðalega mikið af þessu í gær, þetta verður fyndið eftir tímabilið.". Liðsfélagar Þóris hafa gert nokkuð grín að honum. ,, Maður er búinn að fá fullt af skotum og gælunöfn á borð við "20sek maðurinn" og þeir vilja meina að ég sé búinn að toppa Vinnie Jones sem fékk einhvern tímann gult spjald eftir 5 sekúndur." Sagði Þórir við Fótbolti.net að lokum.

