Heimild: AFP
Uli Hoeness, forseti Bayern Munchen, segir að Luca Toni megi fara frítt frá félaginu í janúar.
Toni er samningsbundinn Bayern til ársins 2011 en samband hans og þjálfarans Louis Van Gaal hefur verið mjög slæmt á tímabilinu.
Hoeness sagði í sjónvarpsviðtali í dag að ekkert tilboð hafi borist í Toni ennþá.
,,Við erum tilbúnir að lána hann eða láta hann fara án greiðslu," sagði Hoeness.
Toni, sem er 32 ára Ítali, hefu verið í herbúðum Bayern síðan árið 2007.
Athugasemdir