Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 29. desember 2017 11:36
Magnús Már Einarsson
Leikur í Vestmannaeyjum á sama tíma og Þjóðhátíð
Áhorfendur sátu hringinn í kringum völlinn á leik ÍBV og FH árið 2013.
Áhorfendur sátu hringinn í kringum völlinn á leik ÍBV og FH árið 2013.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV og Fylkir mætast í Pepsi-deild karla á laugardegi um Verslunarmannahelgina en KSÍ birti í dag leikjaniðurröðun fyrir Pepsi-deild karla.

15. umferðin í deildinni hefst laugardaginn 4. ágúst með leik ÍBV og Fylkis en aðrir leikir í umferðinni fara fram þriðjudaginn 7. ágúst og miðvikudaginn 8. ágúst.

Búast má við miklum fjölda áhorfenda á leikinn í Eyjum þann 4. ágúst enda er Þjóðhátíð í gangi á sama tíma.

Árið 2013 mættu rúmlega 3000 áhorfendur á Hásteinsvöll á leik FH og ÍBV sem fór fram á laugardegi á Þjóðhátíð.




Sjáðu uppröðunina:
Pepsi-deild karla
Pepsi-deild kvenna
Inkasso-deild karla
Athugasemdir
banner
banner