fös 11. október 2019 16:00
Elvar Geir Magnússon
Real Madrid vill fá Eriksen í janúar
Christian Eriksen.
Christian Eriksen.
Mynd: Getty Images
Spænskir fjölmiðlar segja að Real Madrid vilji fá Christian Eriksen í janúarglugganum.

Á forsíðum Marca og Diario AS í morgun er sagt að spænska stórveldið ætli að reyna að fá danska landsliðsmanninn þegar nýtt ár gengur í garð.

Samningur Eriksen við Tottenham rennur út sumarið 2020 og honum er frjálst að ræða við önnur félög frá mog með janúar.

Samningsstaða Eriksen gerir það að verkum að verðmiðinn á honum hefur lækkað umtalsvert.

Í sumar hélt Diario AS því fram að munnlegt samkomulag væri milli Eriksen og Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner