Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 12. október 2019 10:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fellaini: Leikmenn United fara beint á samfélagsmiðla eftir leiki
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur unnið aðeins 11 af 31 leik síðan Marouane Fellaini yfirgaf félagið og fór til Kína.

Sjá einnig: Fellaini: Of fljótir að reka Mourinho

Fellaini segir leikmenn Manchester United fara beint á samfélagsmiðla eftir leiki liðsins og honum finnst það skrítið.

„Þú sérð leikmenn fara beint í búningsklefann eftir leiki og beint á samfélagsmiðla, þannig á það ekki að vera," segir Fellaini.

Þetta er ekki fyrsta gagnrýnin á notkun samfélagsmiðla innan herbúða Manchester United. Árið 2017 kom fram að Jose Mourinho, þáverandi stjóri Manchester United, bannaði samfélagsmiðla á ákveðnum tímum.
Athugasemdir
banner
banner
banner