Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 12. október 2019 16:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mourinho: Brasilíski Ronaldo hæfileikaríkari en Cristiano og Messi
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho hefur marga fjöruna sopið á stjóraferli sínum en hann hefur stýrt mörgum af bestu knattspyrnumönnum heims undanfarna tvo áratugi.

Mourinho var spurður af Marca hvaða leikmaður væri sá besti sem hann hefði séð á ferli sínum.

„Ronaldo, undrið sjálft, Cristiano Ronaldo og Leo Messi hafa átt rosaleg síðustu fimmtán ár. Ef það er hins vegar einungis horft í gæði og hæfileika þá er enginn betri en Ronaldo (Nazario, sá brasilíski). Þegar hann var hjá Barcelona undir stjórn Bobby Robson, það var það besta sem ég hef séð inni á vellinum."

„Meiðsli komu í veg fyrir betri feril en hæfileikarnir sem hann hafði sem nítján ára leikmaður voru ótrúlegir."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner