Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 12. október 2019 17:21
Brynjar Ingi Erluson
Gerrard spilaði með Liverpool og Rangers á Ibrox
Steven Gerrard og Luis Garcia spiluðu báðir í dag
Steven Gerrard og Luis Garcia spiluðu báðir í dag
Mynd: Getty Images
Goðsagnalið Liverpool og Rangers mættust í dag á Ibrox-leikvanginum í Glasgow í dag en það var Liverpool sem hafði betur, 3-2.

Emile Heskey, Luis Garcia og Patrik Berger skoruðu mörk Liverpool á meðan þeir Kris Boyd og Peter Lovenkrands skoruðu fyrir Rangers.

Gerrard fór af velli hjá Liverpool á 75. mínútu en sneri aftur á völlinn nokkrum mínútum síðar og þá í Rangers-treyjunni.

Hann lék síðustu mínúturnar með heimamönnum en leikmenn á borð við Ian Rush, Dirk Kuyt, Glen Johnson, Jamie Carragher og fleiri góðir spiluðu leikinn.


Athugasemdir
banner