Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 08. nóvember 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Allt á uppleið hjá Courtois
Mynd: Getty Images
Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, virðist vera að finna sitt besta form eftir mjög erfiða byrjun á tímabilinu.

Courtois var harðlega gagnrýndur í upphafi tímabils en nú eru liðnar 353 mínútur síðan hann fékk á sig mark með Real Madrid.

Courtois hefur haldið hreinu gegn Galatasaray, Leganes og Real Betis og samtals hefur hann haldið fimm sinnum hreinu með Real Madrid og belgíska landsliðinu undanfarin mánuð.

Í síðasta mánuði hélt hann hreinu í 200. skipti á ferlinum þegar hann fékk ekki á sig mark í leik Belgíu og San Marino.

„Mér líður vel núna. Mér leið líka vel áður en það er gaman að sjá þetta allt ganga upp," sagð Courtois.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner