Það er stór dagur framundan fyrir Pep Guardiola og lærisveina hans í Manchester City, þeir fara í heimsókn á Anfield í dag þar sem þeir mæta toppliði Liverpool.
Guardiola ræddi um framherja Manchester City þá Sergio Aguero og Gabriel Jesus á blaðamannafundi fyrir stórleikinn.
„Hann (Aguero) er fæddur markaskorari, hann er ótrúlegur leikmaður. En við erum með tvo stórkostlega framherja, þeir (Aguero og Jesus) eru ólíkir framherjar sem skila alltaf sínu fyrir liðið. Ég er mjög ánægður með þá báða.”
Leikur Liverpool og Manchester City hefst klukkan 16:30.
Athugasemdir