Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 08. mars 2024 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Edwards fundaði með eigendum Liverpool í Boston
Michael Edwards hér með Jurgen Klopp.
Michael Edwards hér með Jurgen Klopp.
Mynd: Liverpool.com
Klopp er að hætta með Liverpool í sumar.
Klopp er að hætta með Liverpool í sumar.
Mynd: EPA
Eigendur Liverpool hittu Michael Edwards í Boston síðasta sunnudag þar sem þeir ræddu við hann um að snúa aftur til félagsins.

Það verða miklar breytingar á Liverpool í sumar er Jürgen Klopp hættir. Aðstoðarmenn hans hætta einnig og þá er Jörg Schmadtke, yfirmaður fótboltamála, hættur.

Efstur á lista Liverpool fyrir þessar breytingar virðist vera Edwards. Flestir stuðningsmenn Liverpool ættu að kannast við hann, en það má segja að hann hafi verið heilinn á bakvið endurbyggingu Liverpool ásamt Klopp.

Edwards hætti hjá Liverpool árið 2022 eftir að hafa sinnt stöðu yfirmanns íþróttamála en áður vann hann í greiningardeild félagsins.

Edwards er núna eigandi Ludonautics sem sérhæfir sig í ráðgjöf fyrir eigendur íþróttafélaga sem eru í leit að því að bæta árangur innan sem og utan vallar.

Liverpool er að reyna að fá Edwards aftur til félagsins og vilja eigendurnir að hann sé maðurinn sem stjórni þeim breytingum sem eru framundan. Hann hafnaði félaginu í janúar en Liverpool hefur ekki gefist upp á að fá hann aftur.

Edwards var á ráðstefnu í Boston í síðustu viku og nýtti tækifæri með því að hitta eigendur Liverpool í leiðinni. Það er talið að Liverpool vilji að Edwards stjórni þeim breytingum sem eru að fara að eiga sér stað og hann verði þá mögulega með Richard Hughes sér við hlið. Hughes er að hætta sem yfirmaður fótboltamála hjá Bournemouth.

Stærsta verkefni Edwards og Hughes þá til að byrja með væri að ráða nýjan stjóra fyrir liðið. En það verður fróðlegt að sjá hvort það takist hjá Liverpool að sannfæra hinn bráðgáfaða Edwards að snúa til baka.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner