Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   fim 08. ágúst 2019 17:15
Hafliði Breiðfjörð
Ian Jeffs tekur landsliðið fram yfir leik ÍBV gegn Val
Icelandair
Ian Jeffs er tímabundinn þjálfari ÍBV og aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins.
Ian Jeffs er tímabundinn þjálfari ÍBV og aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ian Jeffs þjálfari ÍBV mun ekki stýra liðinu í leiknum gegn Val í Pepsi Max-deildinni 1. september næstkomandi og verður heldur ekki með liðinu í undirbúningi fyrir leikinn.

Jeffs er einnig aðstoðarþjálfari Jóns Þórs Haukssonar með íslenska kvennalandsliðið og mun vera að störfum þar frá lokum ágúst enda leikir gegn Ungverjalandi og Slóvakíu hér heima 29. ágúst og 2. september.

Hann staðfesti við Fótbolta.net í dag að hann verði ekki með ÍBV liðiniu í leiknum gegn Val vegna þessa og heldur ekki í undirbúningi vegna leiksins.

Andri Ólafsson aðstoðarmaður hans mun því stýra liðinu og fær annan sér til aðstoðar í þeim leik.

Ian Jeffs tók tímabundið við liði ÍBV eftir að Pedro Hipolito hætti í sumar og stýrir liðinu aðeins út tímabilið. Hann mun ekki geta tekið við starfinu til framtíðar vegna starfanna með kvennalandsliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner