Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. mars 2024 10:15
Elvar Geir Magnússon
Arda Guler: Mark sem hjálpar mér að yfirstíga erfiðleikana
Arda Guler.
Arda Guler.
Mynd: Getty Images
Það var stór stund fyrir tyrkneska ungstirnið Arda Guler þegar hann skoraði sitt fyrsta mark í La Liga fyrir Real Madrid í gær.

Hann skoraði fjórða mark Real í uppbótartíma í 4-0 sigri gegn Celta Vigo. Þetta hefur verið erfitt fyrsta tímabil fyrir þennan nítján ára gamla leikmann sem hefur aðeins spilað samtals 93 mínútur síðan hann kom frá Fenerbahce síðasta sumar. Meðal annars vegna meiðsla.

„Það var geggjað að skora og stemningin var frábær. Ég er þakklátur öllum þeim sem hafa sýnt mér stuðning. Ég vona að mun fleiri mörk muni fylgja," segir Guler.

„Þetta hefur verið virkilega erfitt tímabil til þessa en vonandi er bjartara framundan. Ég tel mig hafa gæðin og karakterinn til að yfirstíga erfiðleikana."

Spænskir fjölmiðlar hafa talað um að Carlo Ancelotti sé óánægður með hugarfar Guler á bekknum og telji að best væri fyrir framþróun hans að fara á lán.

„Hann hefur mikla hæfileika. Hann mun í framtíðinni fá meiri spiltíma. Ég er ekki að tala um morgundaginn samt. Þetta mark er mikilvægt fyrir hann," sagði Ancelotti eftir leik í gær.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 33 26 6 1 71 22 +49 84
2 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
3 Girona 32 21 5 6 67 40 +27 68
4 Atletico Madrid 32 19 4 9 59 38 +21 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 33 13 12 8 46 35 +11 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
10 Getafe 32 9 13 10 38 44 -6 40
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
13 Las Palmas 32 10 7 15 30 39 -9 37
14 Alaves 32 9 8 15 28 38 -10 35
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 32 7 10 15 37 47 -10 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 32 1 11 20 31 64 -33 14
Athugasemdir
banner
banner
banner