Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 11. mars 2024 20:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sveindís skoraði í stórsigri - Sverrir Ingi og félagar á toppinn
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir var á skotskónum í kvöld þegar Wolfsburg vann stórsigur á RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni.

Wolfsburg leiddi 2-0 eftir fyrri hálfleikinn og gerði Sveindís þriðja markið snemma í seinni hálfleiknum.

Sveindís hefur núna gert tvö mörk fyrir Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni eftir að hún sneri til baka úr erfiðum meiðslum.

Wolfsburg vann leikinn 4-0 og er í öðru sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Bayern München. Baráttan um titilinn verður hörð alveg til enda.

Sverrir spilaði í góðum sigri
Í dönsku úrvalsdeildinni spilaði landsliðsmiðvörðurinn Sverrir Ingi Ingason allan tímann þegar Midtjylland vann sterkan sigur á Randers, 0-1. Sigurmarkið kom um miðbik fyrri hálfleiks.

Sverrir Ingi og félagar eru á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir þennan sigur með einu stigi meira en Bröndby og þremur stigum meira en FC Kaupmannahöfn sem er í þriðja sæti.
Athugasemdir
banner