Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 19. febrúar 2012 09:30
Sebastían Sævarsson Meyer
Heimild: Sky 
Harry Redknapp staðfestir áhuga á Eden Hazard
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur staðfest að félagið sé með Eden Hazard undir smásjánni.

Hazard er einn eftirsóttasti leikmaður Evrópu um þessar mundir en þessi 21. árs gamli leikmaður Lille í Frakklandi er talið eitt mesta efni í fótboltanum.

Hann hefur undandarið verið sterklega orðaður við bröttför frá Lille en talið er líklegt að leikmaðurinn haldi til Englands á næstu leiktíð.

Samkvæmt fréttum frá Frakklandi í síðustu viku hefur Tottenham náð samkomulagi við Lille um að Hazard, þó hefur það ekki verið staðfest.

,,Við höfum verið að skoða Hazard, hann er leikmaður sem er klárlega á okkar lista,” sagði Redknapp.

,,Við töluðum um hann fyrir nokkrum vikum, við byrjuðum að kanna möguleikana á að fá hann til félagsins.”
Athugasemdir
banner
banner