Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. mars 2019 15:17
Elvar Geir Magnússon
Hannes enn límdur við bekkinn
Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hannes Þór Halldórsson sat á varamannabekk
Qarabag í Aserbaídsjan þegar liðið vann 2-1 útisigur gegn Sabayil í dag.

Qarabag er í harðri baráttu við Neftchi um meistaratitilinn en liðið er með eins stigs forystu. Neftchi á leik til góða sem nú er í gangi.

Brasilíumaðurinn Vagner da Silva ver mark Qarabag.

„Hefur aðeins spilað fjóra deildarleiki í Aserbaídsjan á þessu tímabili. Lék seinasta leik með liðinu 11. nóvember á síðasta ári," sagði um Hannes í yfirferð Fótbolta.net á stöðu landsliðsmanna okkar.

Hannes er í íslenska landsliðinu sem mætir Andorra eftir viku og Frakklandi þremur dögum síðar í undankeppni EM.

Sjá einnig:
Hamren: Hannes er númer eitt

Athugasemdir
banner
banner
banner