Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 05. apríl 2019 11:20
Elvar Geir Magnússon
Hennessey hreinsaður af Hitler ásökunum
Myndin umtalaða.
Myndin umtalaða.
Mynd: Twitter
Wayne Hennessey, markvörður Crystal Palace, hefur verið hreinsaður af sök um að hafa verið með nasistakveðju eftir bikarsigur gegn Grimsby.

Hennessey var myndaður í vafasömum stellingum en Max Meyer, liðsfélagi hans, birti myndina á Instagram.

Hennessey segist alls ekki hafa verið að leika eftir Hitler og eftir rannsókn enska knattspyrnusambandsins hefur málið verið látið niður falla þar sem ekki er hægt að sanna sekt hans.

„Ég veifaði að þeim sem var að taka myndina og á sama tíma setti ég höndina yfir munnin á mér að því ég var að koma skilaboðum áleiðis og gerði þetta til þess að það sem ég var að segja myndi heyrast hærra," sagði Hennessey.

„Ég get sagt það að ég myndi aldrei í lífinu gera þetta tákn viljandi. Þetta var algjör tilviljun."
Athugasemdir
banner
banner