Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. ágúst 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Jovic strax á förum frá Real Madrid?
Strax á förum?
Strax á förum?
Mynd: Getty Images
Real Madrid gæti lánað framherjann Luka Jovic á næstu dögum samkvæmt frétt spænska blaðsins Marca í dag.

Real Madrid keypti hinn 21 árs gamla Jovic frá Frankfurt á 62 milljónir punda í júní eftir að hann skoraði 27 mörk í 48 leikjum á síðasta tímabli.

Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, hefur hins vegar ekki hrifist af Jovic á undirbúningstímabilinu.

Zidane hefur efasemdir um að Jovic sé tilbúinn að spila með Real Madrid á komandi tímabili.

Serbinn gæti því farið á lán á þessu tímabili samkvæmt frétt Marca.
Athugasemdir
banner
banner