mið 11. september 2019 20:07
Brynjar Ingi Erluson
Neville skammaði Carragher í góðgerðarleiknum
Jamie Carragher og Gary Neville elska að kítast
Jamie Carragher og Gary Neville elska að kítast
Mynd: EPA
Góðgerðarleikur Vincent Kompany er í gangi þessa stundina en úrvalslið leikmanna er að vinna goðsagnir Manchester City, 2-1.

Goðsagnalið Man City komst yfir á 2. mínútu með marki frá Martin Petrov en þá varð einhver misskilningur milli Jamie Carragher og Gary Neville.

Carragher lék með Liverpool allan sinn feril á meðan Neville lék með Manchester United en þeir tveir mynda öflugt sparkspekingateymi á Sky Sports.

Neville var ósáttur við varnarleik Carragher í markinu. Hann skammaði hann er Petrov skoraði laglegt mark áður en Neville þurfti að fara af velli á 35. mínútu vegna meiðsla.

Hægt er að sjá myndband af markinu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner