Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. mars 2024 15:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fernandes bauð Rashford að taka vítið - „Var búinn að fá mína"
Mynd: EPA

Bruno Fernandes var óeigingjarn þegar hann bauð Marcus Rashford að taka seinna víti Manchester United í sigrinum á Everton í dag.


United vann leikinn 2-0 en bæði mörkin komu úr vítaspyrnum. Bruno Fernandes kom liðinu yfir snemma leiks þegar hann skorað örugglega úr víti.

Liðið fékk aðra vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum en það vakti athygli að Rashford steig á punktinn. Hann skoraði einnig og tryggði United sigurinn.

„Við tökum báðir víti. Ég bauð Marcus að taka hana ef hann vildi og hann sagðist vera með sjálfstraust. Hann er einn af þeim sem stjórinn velur til að taka víti. Ég var búinn að fá mína, Rashford gat nælt í mark úr vítinu," sagði Fernandes.


Athugasemdir
banner