Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 09. mars 2024 18:03
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Atlético fékk skell í Cádiz
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tveimur fyrstu leikjum dagsins er lokið í spænska boltanum, þar sem Atlético Madrid heimsótti fallbaráttulið Cádiz og beið óvæntur ósigur.

Juanmi skoraði eina markið í tíðindalitlum fyrri hálfleik þar sem hvorugt liðið ógnaði mikið.

Síðari hálfleikurinn var aðeins líflegri en áfram var jafnræði með liðunum á vellinum. Juanmi var aftur á ferðinni á 64. mínútu og afgreiddi hann þá gestina frá Madrid með seinna markinu í 2-0 sigri.

Þetta eru afar dýrmæt stig fyrir smálið Cadiz, sem er með 22 stig eftir 28 umferðir - tveimur stigum frá öruggu sæti í deildinni. Þetta er aftur á móti skellur fyrir Atletico, sem er áfram í meistaradeildarsæti en aðeins fimm stigum fyrir ofan Athletic Bilbao sem á leik til góða.

Hugo Duro skoraði þá eina mark leiksins er Valencia lagði Getafe að velli.

Duro skoraði undir lok fyrri hálfleiks og reyndu gestirnir að jafna í síðari hálfleik en tókst ekki þrátt fyrir góðar tilraunir.

Valencia er tveimur stigum frá evrópusæti eftir þennan sigur. Getafe er fimm stigum þar á eftir.

Cadiz 2 - 0 Atletico Madrid
1-0 Juanmi ('24 )
2-0 Juanmi ('64 )

Valencia 1 - 0 Getafe
1-0 Hugo Duro ('40 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 33 26 6 1 71 22 +49 84
2 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
3 Girona 32 21 5 6 67 40 +27 68
4 Atletico Madrid 32 19 4 9 59 38 +21 61
5 Athletic 32 16 10 6 52 30 +22 58
6 Real Sociedad 33 13 12 8 46 35 +11 51
7 Betis 32 12 12 8 40 38 +2 48
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Villarreal 32 11 9 12 51 55 -4 42
10 Getafe 32 9 13 10 38 44 -6 40
11 Osasuna 32 11 6 15 37 46 -9 39
12 Sevilla 32 9 10 13 41 45 -4 37
13 Las Palmas 32 10 7 15 30 39 -9 37
14 Alaves 32 9 8 15 28 38 -10 35
15 Vallecano 32 7 13 12 27 39 -12 34
16 Mallorca 32 6 13 13 26 38 -12 31
17 Celta 32 7 10 15 37 47 -10 31
18 Cadiz 32 4 13 15 22 45 -23 25
19 Granada CF 32 3 9 20 33 61 -28 18
20 Almeria 32 1 11 20 31 64 -33 14
Athugasemdir
banner
banner