Dagur Dan Þórhallsson byrjaði á bekknum þegar CF Montreal tók á móti Orlando City í bandarísku MLS deildinni í kvöld. Dagur gekk til liðs við Montreal frá Orlando fyrir áramót.
Montreal var sterkari aðilinn en það stefndi í markalaust jafntefli. Montreal náði að komast yfir með marki úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu í uppbótatíma.
Montreal var sterkari aðilinn en það stefndi í markalaust jafntefli. Montreal náði að komast yfir með marki úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu í uppbótatíma.
Dagur kom inn á strax í kjölfarið og innsiglaði sigurinn á áttundu mínútu uppbótatímans. Montreal er í 10. sæti Austurdeildar með 12 stig eftir 11 umferðir.
Andri Fannar Baldursson sneri aftur í byrjunarlið Kasimpasa eftir leikbann þegar liðið tapaði dýrmætum stigum í fallbaráttunni í Tyrklandi.
Liðið tapaði 3-2 gegn Genclerbirligi og er þremur stigum frá fallsæti fyrir lokaumferðina en þá mætir liðið toppliði Galatasaray. Logi Tómasson var í byrjunarliði Samsunspor sem tapaði 3-0 gegn Basaksehir. Samsunspor mun enda í 7. sæti.
Tómas Bent Magnússon er á meiðslalistanum hjá Hearts sem er í gríðarlega spennandi titilbaráttu í Skotlandi. Liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Motherwell í kvöld en hinn norsk íslenski Eyþór Martin Björgólfsson, leikmaður Motherwell, er einnig á meiðslalistanum.
Hearts er með 77 stig, fjórum stigum á undan Celtic, þegar tvær umferðir eru eftir en Celtic á leik til góða. Motherwell er í 4. sæti með 58 stig, fjórum stigum á undan Hibernian í baráttunni um sæti í Sambandeildinni.



