Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 15:39
Kári Snorrason
Iraola efstur á óskalista Palace
Mynd: EPA
Andoni Iraola er efstur á óskalista Crystal Palace, sem leitar að eftirmanni Oliver Glasner sem lætur af störfum sem þjálfari Palace eftir tímabil.

Iraola tilkynnti á dögunum að hann myndi yfirgefa Bournemouth í sumar og er sagður opinn fyrir því að vera áfram í ensku úrvalsdeildinni.

Iraola er þó eftirsóttur biti. Hann var sterklega orðaður við Athletic Bilbao en Edin Terzic var kynntur sem nýr stjóri liðsins í gær. Þá hefur hann jafnframt verið orðaður við Chelsea og Man United.

Fleiri nöfn hafa verið orðað við stjórastól Palace, meðal annars Frank Lampard, Kieran McKenna, Thomas Frank, Sean Dyche, Marco Silva og Pierre Sage.

Palace vill ganga frá ráðningu sem fyrst svo nýr stjóri geti tekið þátt í leikmannakaupum sumarsins. Liðið mætir Rayo Vallecano í úrslitum Sambandsdeildarinnar 27. maí.
Slapp
banner