Afturelding vann frábæran 5-1 sigur á KÞ í 1. umferð í 2. deild kvenna í gær.
Mosfellingar féllu úr Lengjudeildinni á síðasta ári en það virðist vera mikill vilji að fara beint aftur upp.
Mikilvægt er að byrja mótið af krafti sem Afturelding gerði. Karen Dæja Guðbjartsdóttir skoraði þrennu og Maria Baska tvö mörk á meðan Þórey Hanna Sigurðardóttir náði að klóra í bakkann fyrir KÞ undir lok leiks.
Augnablik vann á meðan ÍR 2-1 í Fífunni. Kolbrún Nanna Karlsdóttir skoraði á 27. mínútu áður en Hólmfríður Þrastardóttir jafnaði í upphafi síðari hálfleiks. Í uppbótartíma skoraði Kolbrún sigurmark Augnabliks og færði þeim sigur í fyrsta leik.
Úrslit og markaskorarar:
Augnablik 2 - 1 ÍR
1-0 Kolbrún Nanna Karlsdóttir ('27 )
1-1 Hólmfríður Þrastardóttir ('48 )
2-1 Kolbrún Nanna Karlsdóttir ('90 )
KÞ 1 - 5 Afturelding
0-1 Maria Baska ('39 )
0-2 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('54 )
0-3 Maria Baska ('56 )
0-4 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('82 )
0-5 Karen Dæja Guðbjartsdóttir ('88, víti )
1-4 Þórey Hanna Sigurðardóttir ('89 )
2. deild kvenna
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Afturelding | 1 | 1 | 0 | 0 | 5 - 1 | +4 | 3 |
| 2. Augnablik | 1 | 1 | 0 | 0 | 2 - 1 | +1 | 3 |
| 3. Dalvík/Reynir | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 4. Einherji | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 5. Fjölnir | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 6. Fylkir | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 7. KFR | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 8. Smári | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 9. Vestri | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 10. Álftanes | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 - 0 | 0 | 0 |
| 11. ÍR | 1 | 0 | 0 | 1 | 1 - 2 | -1 | 0 |
| 12. KÞ | 1 | 0 | 0 | 1 | 1 - 5 | -4 | 0 |


