Jose Mourinho er efstur á óskalista Real Madrid, Darwin Nunez gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina og Wolves hefur samþykkt að selja brasilíska miðjumanninn Joao Gomes til Spánar. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Real Madrid er í viðræðum við umboðsmann portúgalska þjálfarans Jose Mourinho um möguleikann á því að ráða hann sem næsta þjálfara liðsins. Hann er í dag þjálfari Benfica í heimalandinu (Athletic)
Mourinho, sem stýrði áður félögum á borð við Chelsea og Manchester United, fer fram á að hann muni hafa öll völd og veruleg áhrif á leikmannakaup. (Sky í Þýskalandi)
Newcastle og Chelsea hafa áhuga á Darwin Nunez (26), fyrrum leikmanni Liverpool, en Úrúgvæinn gæti yfirgefið sádi-arabíska félagið Al Hilal í sumar. (Daily Star)
Arsenal, Liverpool, Bayern og Barcelona eru öll áhugasöm um Bradley Barcola (23), leikmann Paris Saint-Germain og franska landsliðsins. (Mundo Deportivo)
Atlético Madríd er að ganga frá kaupum á brasilíska miðjumanninum Joao Gomes (25) frá Wolves fyrir 39 milljónir punda. (GiveMeSport)
Inter ætlar að skrá sig úr kapphlaupinu um Guglielmo Vicario (29), markvörð Tottenham, og mun þess í stað einbeita sér í að styrkja aðrar stöður í hópnum. (Corriere dello Sport)
Leeds er í bílstjórasætinu um belgíska framherjann Lois Openda (26), sem er á mála hjá Juventus á Ítalíu. Coventry City, sem vann ensku B-deildina á dögunum, er einnig í baráttunni. (Football Insider)
Newcastle hyggst endurskipuleggja starfsmannadeild sína er varðar leikmannaráðningin og mun ráða njósnara til þess að sjá um Balkansvæðið. Shola Ameobi, fyrrum leikmaður Newcastle, mun hætta sem yfirmaður lánsmála hjá félaginu. (The i)


