Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 10:00
Fótbolti.net
Karólína og Cecilía mættust í skemmtilegri áskorun
Kvenaboltinn
Mynd: Inter
Ítalska stórliðið Inter Milan birti í dag skemmtilegt myndband á samfélagsmiðlum sínum þar sem íslensku landsliðskonurnar Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir fara á kostum.

Um er að ræða fyrsta þáttinn af „Fast Challenge Zone“ þar sem leikmenn félagsins takast á í léttum og skemmtilegum áskorunum. Í þættinum keppast Karólína og Cecilía meðal annars um að vera fljótastar að svara spurningum um liðsfélaga sína og annað sem tengist félaginu.

Báðar gengu þær til liðs við Inter síðasta sumar frá Bayern München. Cecilía var með Inter á láni á síðasta tímabili og var einn besti markvörður ítölsku deildarinnar.

Inter er með þrjár íslenskar landsliðskonur á sínum snærum en auk Karólínu og Cecilíu leikur markvörðurinn Telma Ívarsdóttir einnig með félaginu.

Í kynningu á myndbandinu spyr Inter, sem er eitt stærsta félag Ítalíu, stuðningsmenn sína hvor þeirra muni hafa betur í fyrsta þættinum og útkomuna má sjá hér fyrir neðan.



Slapp
banner