Aron Einar Gunnarsson og félagar hans í Al Gharafa unnu Emír-bikarinn í Katar með því að vinna Al Sadd, 4-1, í úrslitaleiknum í dag.
Landsliðsmaðurinn átti frábæran leik í liði Al Gharafa og lagði meðal annars upp þriðja markið fyrir alsírska leikmanninn Yacine Brahimi í síðari hálfleiknum.
Hann var einn af bestu mönnum leiksins. FlashScore gefur honum 7 í einkunn, en aðeins tveir leikmenn voru með hærri einkunn á miðlinum.
Brahimi setti þrennu fyrir Al Gharafa sem var að vinna bikarinn annað árið í röð og í níunda sinn í sögunni.
??????| ???????? ?????? ?????? ??????? 2026????#???_?????? pic.twitter.com/3fwpIjbrdJ
— AL GHARAFA SC | ???? ??????? (@ALGHARAFACLUB) May 9, 2026




