Middlesbrough 0 - 0 Southampton
Middlesbrough og Southampton gerðu markalaust jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrsitum í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildina.
Í fyrri hálfleiknum voru Boro-menn líklegri til að skora og í raun ótrúlegt að liðinu hafi ekki tekist það, en í þeim síðari tók Southampton völdin.
Taylor Harwood-Bellis setti boltann í slá og þá átti Samuel Edozie skot rétt framhjá markinu.
Engin mörk en það er vonandi að þau muni láta sjá sig í seinni leiknum sem fer fram á St. Mary's, heimavelli Southampton, á þriðjudag.
Sigurvegarinn mætir Hull eða Millwall í úrslitum á Wembley.


