Íslendingaliðið Brann tapaði í úrslitaleik norska bikarsins gegn Bodö/Glimt í dag.
Kristall Máni Ingason var tæpur fyrir leikinn en hann var í byrjunarliðinu hjá Frey Alexanderssyni ásamt Jóni Degi Þorsteinssyni. Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon eru fjarri góðu gamni.

Bodö/Glimt náði forystunni snemma leiks en Brann jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks. Kristall kom Brann síðan yfir strax í kjölfarið.
Jón Dagur var tekinn af velli á 66. mínútu og Kristall á 72. mínútu.
Bodö/Glimt jafnaði metin þegar fjórar mínútur voru til loka venjulegs leiktíma og því þurfti að framlengja. Bodö/Glimt náði forystunni þegar tíu mínútur voru til loka framlengingarinnar en Brann gafst ekki upp og jafnaði tveimur mínútum fyrir leikslok.
Það þurfti því að fara í vítaspyrnukeppni en þar hafði Bodö/Glimt betur 4-2.