Landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir skoraði úr vítaspyrnu og bjargaði þannig stigi fyrir Kristianstad sem gerði 2-2 jafntefli við Norrköping í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni.
Alls voru fjórir Íslendingar í hópnum í leiknum, en þær Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Alexandra byrjuðu hjá Kristianstad á meðan Linda Líf Boama var á bekknum og þá byrjaði Sigdís Eva Bárðardóttir hjá Norrköping.
Alexandra jafnaði metin fyrir Kristianstad í 2-2 með marki úr vítaspyrnu á 75. mínútu leiksins, en þær Elísa og Sigdís fóru báðar af velli um það bil hálftíma fyrir leikslok. Linda Líf kom ekki við sögu hjá Kristianstad.
Kristianstad er í öðru sæti með 10 stig en Norrköping í 11. sæti með 3 stig.
Eyrún Embla Hjartardóttir byrjaði hjá varaliði Häcken í 2-1 tapi gegn Örebro í B-deildinni. Häcken er án stiga á botninum.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir kom inn af bekknum hjá FCK sem vann ASA Aarhus, 3-2, í meistarariðli dönsku B-deildarinnar. Emelía Óskarsdóttir var ónotaður varamaður.
FCK er í öðru sæti með 13 stig eftir sjö leiki.
Sandra María Jessen var í byrjunarliði Köln sem lagði Hamburger SV að velli, 2-1, í þýsku deildinni. Köln er í 7. sæti með 34 stig þegar ein umferð er eftir.
Hin norsk-íslenska Íris Ómarsdóttir gerði sigurmark Fiorentina í 3-2 sigri á Genoa í Íslendingaslag á Ítalíu.
Birta Georgsdóttir var fremst hjá Genoa á meðan Hlín Eiríksdóttir var í sóknarlínu Fiorentina með Írisi. Íris gerði þriðja mark Fiorentina rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok.
Fiorentina er í 4. sæti með 33 stig en Genoa er formlega fallið niður í B-deildina, en liðið er á botninum með 10 stig, fjórum stigum frá næsta liði þegar ein umferð er eftir.

