Lionel Messi hefur opnað sig um samband hans við Cristiano Ronaldo.
Messi og Ronaldo voru tveir af bestu leikmönnum heims á sínum tíma en þeir mættust oft þar sem þeir spiluðu hjá Barcelona og Real Madrid á hátindi ferilsins.
Messi og Ronaldo voru tveir af bestu leikmönnum heims á sínum tíma en þeir mættust oft þar sem þeir spiluðu hjá Barcelona og Real Madrid á hátindi ferilsins.
Messi var spurður út í þennan tíma í sjónvarpsviðtali í Argentínu.
„Þetta var merkilegur íþróttarígur. Það er eðlilegt fyrirbæri í fótbolta, ég var hjá Barcelona á meðan hann var hjá Real Madrid og við börðumst um allt, bæði sem lið og einstaklingar sem leiddi til stöðugra samanburða á okkur," sagði Messi.
„Samband okkar var alltaf gott og virðulegt. Þetta var bara íþróttatengt, ekkert persónulegt. Við hittumst ekki oft fyrir utan leikja eða verðlaunahátíða og við héldum góðu sambandi. Nú erum við á öðrum stað í lífinu en þetta var merkilegur tími."


