Stjörnustrákurinn Róbert Frosti Þorkelsson var hetja GAIS í 1-0 sigri liðsins á Västerås í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Róbert er kominn í stærra hlutverk hjá GAIS og í raun orðinn fastamaður þar.
Hann hefur komið mjög sterkur inn í tímabilið og verður bara betri með hverjum leiknum.
Í dag skoraði hann sigurmark GAIS á 56. mínútu leiksins með skoti úr teignum eftir sendingu frá hægri.
Annað deildarmark hans á tímabilinu og mark sem tryggði GAIS annan sigurinn í röð.
GAIS situr nú í 8. sæti deildarinnar með 8 stig etir sjö umferðir.
Thorkelsson gives GAIS the lead away at Västerås! pic.twitter.com/wG8xbuMm9t
— Swedish Football News (@SwefootballEN) May 9, 2026



