Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Adam Ingi og félagar nálgast sæti í næst efstu deild - Júlíus lagði upp
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ingi Benediktsson var í rammanum þegar AB Kaupmannahöfn fór langt með að gulltryggja sig upp í næst efstu deild í Danmörku í dag.

Liðið vann Thisted 2-1 og er á toppnum í C-deild með 62 stig eftir 27 umferðir. Liðið er ellefu stigum á undan Vendsyssel og 14 stigum á undan Naestved en bæði lið eiga leik til góða. Það eru 15 stig eftir í pottinum fyrir AB en tvö efstu liðin fara beint upp í næst efstu deild.

Júlíus Magnússon lagði upp fyrra mark Elfsborg í 1-0 sigri á Brommapojkarna í sænsku deildinni. Júlíus og Ari Sigurpálsson voru í byrjunarliði Elfsborg g en Hlynur Freyr Karlsson var ónotaður varamaður hjá Brommapojkarna.

Logi Hrafn Róbertsson spilaði 80 mínútur í grátlegu 3-2 tapi Varnamo gegn Varberg í næst efstu deild í Svíþjóð. Varnamo jafnaði metin í uppbótatíma en Varberg komst yfir í blálokin. Varnamo er í 7. sæti með 9 stig eftir sex umferðir. Srdjan Tufegdzic, Túfa, er þjálfari liðsins.

Daníel Leó Grétarsson spilaði tæpan klukkutíma þegar Sonderjyske vann Viborg 1-0 í efstu deild í Danmörku. Ísak Andri Sigurgeirsson er á meiðslalistanum út tímabilið hjá Viborg. Viborg er í 4. sæti og Sonderjyske í 5. sæti, bæði með 44 stig. Liðin eru tveimur stigum á eftir Nordsjælland í baráttunni um Sambandsdeildarsæti fyrir lokaumferðina en Nordsjælland á leik til góða.

Nóel Atli Arnórsson var í byrjunarliði Álaborgar sem tapaði 3-1 gegn botnliði Middelfart í næst efstu deild í Danmörku. Álaborg er í 7. sæti með 42 stig.

Viðar Ari Jónsson kom inn á í fyrri hálfleik í 1-0 sigri HamKam á Valerenga í norsku deildinni. HamKam er í 6. sæti með 13 stig eftir 7 umferðir.
Slapp
banner
banner